|
|
03.12.2009 09:56:12 / bylgja
Já desembermánuður er kominn......veiiiiiiii  Mánuðurinn sem krílið á að koma, aldrei samt að vita hvort krílið vilji bara ekki koma í janúar. Það segir Rakel Talía, að barnið komi í janúar - það kemur í ljós bráðlega  Jepps.....jólin á næsta leyti. Vá hvað ég er fegin að vera ekki í prófum í þessum mánuði, geta bara slakað á með mína hræðilegu grindaverki-grindin er sem sagt alltaf að verða verri og verri. En það eru nú bara 4 vikur eftir jafnvel 6 vikur ef ég fer framyfir, svo ég hlýt að lifa það af. Innilega til hamingju með afmælið Valdi bróðir - hafðu það gott í dag
Talandi um jólin, þá væri ég alveg til í smá jólasnjó sem allir eru að tala um á Íslandi, býst nú ekkert við snjó hér í DK, enda fer allt úrskeiðis ef snjór kemur. Danir og snjór eiga ekki saman, þeir kunna ekki að keyra, skólar loka og strætóar verða of seinir. Löggan sendir út tilkynningu um að fólk eigi að vera bara heima hjá sér! Man þegar það kom snjóföl(samkvæmt íslenskum mælikvarða) í febrúar 2007, það fór allt úr böndunum hérna. Ég átti að fara í mömmuhitting og því var aflýst vegna snjó - já frekar spes 
Smá jólamynd með snjó
Annars er ekker mikið að frétta héðan frá Helsingforsgade. Sigfús er á fullu að skrifa ritgerð sem hann á skila í næstu viku. Rakel Talía var veik á mánudaginn, fékk hita. Var orðin hress á þriðjudaginn og fór í leikskólann. Fékk samt aftur hita um kvöldið og var orðin frekar hás. Þannig að hún var heima í gær, var samt mjög hress og hljóp hérna allan daginn, var ekki með hita. En þar sem konurnar á deildinni voru ekki hressar að hún var bara einn dag veik. Þá var ákveðið að Rakel skildi vera heima í dag, orðin hitalaus og eina að hún er ennþá hás. Við mæðgur verðum að dunda okkur eitthvað hérna heima í dag. Annars er ég að verða búin að skrifa á jólakortin, ætla að vera búin að senda allt frá mér í byrjun næstu viku. Þar sem ég er búin með allt. Svo er bara að njóta desember og bíða eftir erfingjanum Vonandi líst honum bara á að koma í janúar......hehhee
Jæja nóg í dag. Reyni að vera dugleg hérna megin. Hilsen frá H-15
»
03.11.2009 12:04:31 / bylgja
Já sæll........ekkert blogg hér í nokkra mánuði. Mundi varla lykilorðið en svo datt það í kollinn á mér. En fólk er að biðja um blogg hér. Svo ætli ég verði ekki við óskum þess
Í fréttum er þetta helst :
>Telma, Svavar og Aron Daði bjuggu hjá okkur í 1 og hálfan mánuð. > Gyða og Bensi eignuðust stelpu núna, 28.okt eftir mjög skemmtilega kaffihúsaferð okkar Gyðu innilega til hamingju með snúlla > Það eru 8 vikur í krílið ( 26.des) > Sem sagt 8 vikur í jólin líka. > Ég er byrjuð á jólakortunum, á eftir 20 stykki. Ætla að drífa þetta af í nóv. > Tungumálaskólinn gengur vel - var í prófi á síðast fimmtudag, er að fara í munnlegt á næsta fimmtudag > Sigfús er á fullu í skólanum - mikið að gera hjá honum næstu 6 vikurnar - veiiiiii > Rakel Talía er í góðum málum á leikskólanum og er byrjuð í íþróttaskóla og líkar vel
Já þetta er svona helst. Man ekki eftir öðru. Ég þarf nú að vera duglegri að skrifa e-ð hér inn. Við vorum hjá ljósunni í gær og það kom allt vel út. Barnið er orðið 2.1 kg og er komið í höfuðstöðu. Ég er með verk í lífbeininu - misjöfn eftir dögum. Voða gaman. Úpps gleymdi að nefna að við erum búin að endurraða í herbergið okkar, koma inn 2 barnarúmum og nýrri kommóðu. Svo það er búið - sem betur fer. Allt er að verða tilbúið fyrir krílið, á samt eftir að kaupa smá og þvo allt. Fer í það á næstu viku eða í byrjun des.

Rakel Talía voða dugleg að knúsa bumbuna
Annars var ég að setja inn myndir á nino.is OG færslu. Vildi bara láta ykkur vita Læt þetta duga í bili - ætla að reyna henda inn færslu á vikufresti - jebbs, ég ÆTLA að reyna það Hilsen frá DK
»
07.08.2009 11:59:54 / bylgja
Langt síðan síðast.....usssssssusssssssss....gengur ekki lengur.
Allavega við erum búin að fara til Íslands í sumar, vorum á klakanum á tímabilinu 24.júní-28.júlí. Það var mjög gaman að koma heim og sjá alla ættingjanna og vinina. Náðum samt ekki að hitta alla eins og alltaf, það verður bara bíða til næstu Íslandsför. Við kíktum vestur á Þingeyri í 12-14 daga. Fórum á Dýrafjarðadaga, sem er alltaf gaman og þá hittir maður svo marga þar. Rakel Talía fékk hlaupabóluna fyrir vestan, Viktor Örn frændi hennar smitaði hana þegar við komum til landsins. En það er gott að hlaupabólan sé búin, Rakel Talía fékk engan hita og fékk því bara að vera úti að leika sér í drullubúinu. Enda þýddi ekkert að hanga inni í góða veðrinu. Þegar við komum til Reykjavíkur, þá fórum við í Árbæjarsafnið og Húsdýra-og fjölskyldugarðinn sem var mjög gaman. Fengum geðveikt veður í Húsdýra-og fjölsk.garðinum.
Ferðin hingað til Aarhus gekk mjög vel. Rakel Talía svaf alla flugferðina og var svo í stuði í lestinni að leika og lesa. Við vorum bara í rólegheitum fyrstu vikuna hér í DK. Rakel Talía fór svo á leikskólann á mánudaginn eftir verslunarmannahelgi. Hún var að byrja á nýrri deild, Vinterstue. Þar eru elstu krakkarnir á Vöggustofunni. Rakel Talíu fannst ekkert mál að byrja á nýrri deild, enda þekkir hún flesta krakkanna þar, hún er að kynnast konunum. Okkur Sigfúsi líst bara vel á þessa deild, þeim er boðið að pissa í klósett, eiga að læra klæða sig í útifötinn og borða ekki með smekk. Konurnar á deildinni eru líka mjög fínar.
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Vó...gleymdi næstum því einu. Það er fjölgun hér á Helsingforsgade í desember. Rakel Talía er að verða stóra systir. Allt hefur gengið mjög vel og förum við í 20.vikna sónar á næsta mánudag. Það verður gaman að sjá krílið
Kveðja frá Helsingforsgade Bylgja Dögg
»
17.06.2009 08:24:12 / bylgja
»
21.05.2009 13:22:40 / bylgja
»
11.04.2009 20:04:33 / bylgja
Elsku Róbert Breki,
Til hamingju með 4 ára afmælið þitt í dag 
Vonandi ertu búinn að hafa það gott og skemmtir þér vel í veislunni.

Knús frá Aarhus
»
02.04.2009 20:10:38 / bylgja
....til - Rögnu og Kristins í Silkeborg, þau eignuðust son, Símon Mikael þann 1.apríl og - Telmu og Svavars, þau eignuðust líka son í dag 2. apríl
Gangi ykkur vel með prinsanna ykkar og hlökkum til að hitta drengina 

Hilsen frá Aarhus
»
31.03.2009 11:37:13 / bylgja
»
23.03.2009 14:37:10 / bylgja
Já ekki stend ég mig vel í blogginu.....úpps! Jæja það verður að hafa það. Vonandi gefist þið ekki upp lesendur góðir. Færslan kemur hér inn annað slagið. Út í aðra sálma vorið er að koma hér í Aarhus, samt er kaldur vindur þannig að það er mjög flott gluggaveður-og manni langar í sól og sumar-stuttbuxur og sólaolíu-grill og kjöt......nammi namm.....hlakka svo til þegar sumarið verður komið hér í Aarhus. Sitja úti í grasi allan daginn.....í sandölum og ermalausum bol!!!! Þar sem einn á afmæli í dag, þá fær hann auðvitað afmæliskveðju Elsku Rúna mín, til hamingju með afmælið og hafðu það rosalega gott í dag. Já og pakkinn fer í póst á morgun-LOFA! Geri allt klárt í dag og svo stekk í pósthúsið í fyrramálið-sweetiepæ Rakel Talía vill endilega fá mynd af Doksa úr Cars. Rakel heldur mjög mikið upp á þennan bíl í myndinni. Doksi er gamall kappakstursbíll og á endanum hjálpar hann Leiftri McQueen í kappakstrinum sínum. Já það er sko búið að horfa á oft á þessa mynd hér á Helsingforsgade. RT fær samt núna bara að horfa á myndina um helgar, hún var enda við að spurja mig hvort hún mætti horfa á bílamyndina sína. Nóg komið af bloggi í bili. Annars er allt fínt að frétta, við erum bæði í ritgerðarsmíðum núna í skólanum og verður mikið að gera hjá mér til 15.apríl. Sigfús þarf að skila sinni ritgerð 15.maí og verður/er mikið að gera hjá honum þangað til. Alltaf svo skemmtilegt. Rakel Talía er í leikskólanum á hverjum degi, finnst yfirleitt mjög gaman. Rakel vill helst fara beint út að leika á morgnanna þegar hún kemur í leikskólann og yfirleitt fær hún það. En stundum fara krakkarnir ekki alveg strax út og þá er erfitt líf hjá mýslunni minni, þá fer maður frá henni grenjandi á morgnanna-já erfitt líf. Ég veit að hún grætur bara í 3-5 mín eftir að við förum og fer þá að leika sér og skemmtir sér mjög vel.
Jæja kveð í bili. Bylgja Dögg og rest á H-15.
»
27.02.2009 11:03:13 / bylgja
Ég sit hér inn á lessalnum á Stadtsbókasafninu. Á að vera læra, en er í pínu pásu. Hér sitja allir og læra, allt er hljótt, sólin teygir sig inn og er alveg að verða komin á borðið hjá mér. Ég sit við borð nr.51-fín tala. Ég er að hlusta á fyrirlestur um Upplýsinguna-mjög áhugavert. En samt er ég að skrifa færslu. Lesendum finnst ég ekki vera að standa mig í þessu bloggi, þannig að ég ætla að skrifa nokkrar línur. Nú byrjar maginn á mér að gaula, orðinn frekar svangur. Ég vona að fólkið heyri ekki í maganum á mér. Út í annað...... Til hamingju með afmælið Þórir, hafðu það gott í dag.
Ætla að fá mér smá að borða svo maginn hættir matargaulinu!! Kveðja Bylgja Dögg
»
15.02.2009 11:22:20 / bylgja
Jæja í dag á Sigfús Örn afmæli í dag hér á bæ. Til hamingju með afmælið elsku Sigfús okkar  Knús þínar stelpur.

Já og auðvitað má ekki gleyma að litla stelpan hans Valda bróðir, hún Birgitta Ósk á líka afmæli í dag. Birgitta Ósk er ekkert lítil lengur, er 17 ára í dag og þar af leiðandi fékk hún bílprófið Innilega til hamingju með afmælið Birgitta Ósk og keyrðu varlega á grænu þrumunni
Það er búið að blogga mjög lítið á þessa síðu það sem af er árinu. Ég ætla að reyna að bæta þetta upp. Bloggandinn er að koma yfir mig.
Hilsen frá AArhus
p.s. það er snjór úti og enginn vindur. Ef þið eruð að velta fyrir ykkur hvernig veðrið er.
»
13.01.2009 13:09:44 / bylgja
»
07.01.2009 09:00:44 / bylgja
Litla prinsessan mín er ekkert lengur lítil finnst mér. Rakel Talía á afmæli í dag og er 2 ára í dag. Vá hvað þetta er fljótt að líða. Finnst eins og hún hafi fæðst í gær-2 ár síðan. Rakel Talía var með einhverja magaverki í nótt og fékk að koma upp í til okkar, var vakandi í smá tíma og var oft að vakna. Í morgun þegar klukkan hringdi þá nennti enginn að vakna eftir svefnlitla nótt, en eftir smá stund þá byrjaði ég að vekja Rakel en hún vildi bara sofa lengur. Ég sagði við hana að hún mætti opna pakka og krakkinn reis sig upp á ljóshraða og sagði OPNA PAKKA-PABBI NÁ Í PAKKA!

Hér situr Rakel Talía í bíbístólnum sínum að horfa á sjónvarpið
»
31.12.2008 14:41:53 / bylgja
Í dag er Gamlársdagur, síðasti dagurinn á árinu, dagur númer 365. Í dag eiga foreldrar mínir 40 ára brúðkaupsafmæli Fyrir 40 árum giftu þau sig og skírðu Valda bróðir(fæddur 3.des). Að eiga 40 brúðkaupsafmæli heitir rúbínbrúðkaup samkvæmt brúðkaupsvefnum.
Innilega til hamingju með það mamma og pabbi

 Flottur steinn!
Út í aðra sálma Árið 2008 er að kveðja okkur í kvöld. Þetta ár er búið að vera fínt ár fyrir utan smá kreppu. Við munum fagna nýju ári í kvöld og taka vel á móti því
Eldamennskan er hafið hér á þessum bæ, kalkúnn og grafið lamb verða á boðstólnum hér í kvöld. Hlakka mjög mikið til að borða Gyða og Bensi ætla að koma og vera með okkur í kvöld. Þetta verður rólegt kvöld, þar sem allir eru eða búnir að vera veikir. Já Sigfús byrjaði á Jóladag með hálsbólgu og hita, ég tók við annan í jólum og svo fékk Rakel Talía þessa pest líka. Það er þvílíkt erfitt að vera bæði veik og sinna Rakel. Annar í jólum láum við bæði í sófanum og Rakel ekki orðin veik, var mjög dugleg að leika sér í dótinu sínu. Rakel fékk að fara út í gær fyrsta skipti síðan á Aðfangadag, hefðum frekar átt að sleppa því. Hún var komin með hita í nótt, vaknaði og var ekkert á því að fara sofa. Loksins sofnaði hún og við vöknuðum í morgnu kl.11. Yfirleitt vaknar Rakel milli 8-9 á morgnanna. Þessi jól eru búin að vera ágæt fyrir utan pestina. Gott að slaka á, ná kraftinum og röddinni og vera saman
Við viljum óska ykkur gleðilegs nýs árs og færsældar á komandi ári. Þökkum fyrir allar góðu stundirnar á liðnu ári Hafið það rosalega gott í kvöld og farið mjög varlega með flugeldanna
Nýárskveðjur frá Aarhus
Bylgja Dögg, Sigfús Örn og Rakel Talía

»
24.12.2008 13:43:29 / bylgja
Gleðileg jól og hafið það rosalega gott.
Jólaknús frá DK.

»
Síður: 1 2 3 ... 27
|
Heimsóknir
Í dag: 25 Alls: 102884
|